Skólaráð

Við hvern grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélagsins um skólahald, sbr. 8. gr. grunnskólalaga. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess. Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Skólastjóri starfar með skólaráði og veitir því upplýsingar um starfið í skólanum. 

Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans,  starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar. Skólaráð fundar nokkrum sinnum yfir veturinn.  Fulltrúar skólaráðs taka þátt í ýmis konar stefnumótandi vinnu sem er á döfinni hverju sinni. Foreldrar geta komið erindum til ráðsins með því að hringja eða skrifa tölvupóst.        

Fulltrúar í skólaráði

Starfsreglur skólaráðs

Handbók um skólaráð

Fundargerðir skólaráðs