Bókasafn Giljaskóla
Bókasafn skólans er á 2. hæð í fallegu 120 fermetra rými. Þar eru fjölmörg skáld- og fræðirit, til útlána fyrir nemendur og kennara. Auk þess eru þar hljóðbækur, tímarit, hljómdiskar og spil en laust geisladrif geta starfsmenn fengið lánað í skólanum ef þarf. Lánstími bóka er 30 dagar nema um annað sé samið.
Safnið er opið nemendum mán, þri, mið og fös: 8:10-9:50, 11:30-12, 12:30-14:30 og fim: 8:10-9:30, 11:10-12, 12:30-14:30. Fastur útlánatími í vetur er milli 8:10 og 9:50 mán, þri, mið og fös en 8- 9 30 á fim.
Safnkennsla
Safnkennsla er skipulögð eftir þörfum í samráði við umsjónarkennara hvers bekkjar fyrir sig. Margs konar samvinnuverkefni eru unnin og nemendur fá fræðslu um bókasöfn og Dewey kerfið. Á safninu er vinnuaðstaða fyrir 12-14 nemendur. Að öðru leyti er safnið opið fyrir margvíslega starfsemi; nemendur geta leitað heimilda, stundað nám og lesið eða spilað sér til afþreyingar í frítíma. Snjallsjónvarp er á safninu og hægt er að vinna þar með Ipad eða tölvur skólans. Snjallsímar eru ekki leyfðir á safninu nema með undanþágu frá umsjónarkennara.
Upplestur
Á aðventunni fer að venju fram lestur úr nýjum barna- og unglingabókum fyrir alla nemendur skólans. Um er að ræða annars vegar upptökur af kynningum sem spilaðar eru í bekkjum eða heimsóknir á safnið þar sem skólasafnskennari les fyrir nemendur.
Leitir.is og Gegnir.is
Safnið er tengt landskerfi bókasafna. Upplýsingar um gögn safnsins eru aðgengilegar á netinu leitir.is og geta nemendur og foreldrar því skoðað og leitað úr eigin tölvu. Nýtt bókasafnskerfi var tekið í notkun 2022 sem ber nafnið Alma og er það samtengt gagnagrunninum gegnir.is og vefsíðunni leitir.is.
Umsjón með safninu hefur Ingunn V. Sigmarsdóttir kennari og þjóðfræðingur.