Árshátíð 1. - 10. bekkjar

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda í 1. - 10. árgangi verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 25. mars, miðvikudaginn 9. apríl og fimmtudaginn 10. apríl nk. kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn. Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli bekkjanna sem sýna og er nýttur til vorfagnaða.

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla

Þriðjudagur 25. mars kl. 17:00 verður sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk, afrakstur stuttmyndadaga.

Miðvikudag 9. apríl kl. 17:00 sýna 1.LS, 2.VD, 4.AE, 5.AH, 6.KMÞ, 7.ÁEK og sérdeild

Fimmtudag 10. apríl kl. 17:00 sýna 1.TB, 2.SLR, 3.bekkur, 4.GS, 5.RK, 6.HJ og 7.ÍÓT

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund og að þeim loknum verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

Kaffi og meðlæti kostar 1000 krónur fyrir fullorðna og fyrir 8. bekk og eldri, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.

 

Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.
Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

 

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund með börnum sínum í skólanum.

Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.

 

Kær kveðja og góða skemmtun,

starfsfólk Giljaskóla