Litlu jólin - 19. des.

Litlu - jólin eru á dagskrá 19. des. Nemendur mæta í stofur kl.8.30 og eiga fyrst  notalega stund saman með kennurum sínum, síðan er farið í íþróttasalinn og gengið þar í kringum jólatréð.  Upp úr kl. 10.15 ættu nemendur að ganga út í jólafrí.  Nemendur mæta  svo aftur í skólann eftir jólafrí þriðjudaginn 6. janúar samkvæmt stundaskrá.