1. maí hlaup

• Nemendur Giljaskóla sem tóku þátt í 1. maí hlaupinu stóðu sig frábærlega. Oddeyrarskóli sigraði með 11,5% þátttöku og í öðru sæti var Giljaskóli með 10,4% þátttöku, Lundarskóli var svo í þriðja sæti með 7,8% þáttöku. Það munaði því aðeins örlitlu að við kræktum aftur í bikarinn, en við mætum ákveðin til leiks á næsta ári og krækjum þá vonandi í bikarinn. Að hlaupi loknu var öllum boðið upp á Greifa-pizzur og Svala og dregin voru út útdráttarverðlaun frá Sportveri. Sjá nánar á heimsíðu UFA http://ufa.is/