5.bekkur á Minjasafninu

Föstudaginn 27. nóvember fór 5. bekkur á Minjasafnið og skoðaði ýmsa gamla muni sem tengjast jólunum. RÚV var á staðnum, myndaði heimsóknina og tók viðtöl við þrjá nemendur. Fréttin kemur í fréttatíma RÚV einhvern tíma eftir 11. desember og er liður í því að telja niður til jóla, með fréttastofunnI. Meðfylgjandi myndir sýna hvernig heimsóknin gekk fyrir sig og allir höfðu gaman af.