ABC barnahjálp

Á næstu dögum munu nemendur fá kynningu á börnunum tveimur sem nemendur og starfsmenn í Giljaskóla styrkja. Frá árinu 2007 höfum við styrkt tvö börn, oftast strák og stelpu. Frá 2012 höfum við styrkt stelpu í Indlandi sem heitir Venkateswaramma. Hún er fædd árið 2005 og býr á heimili Litlu ljósanna. Hún kemur frá mjög fátæku heimli, faðir hennar er látinn og móðir hennar getur ekki séð fyrir henni. Við hjálpum henni að eiga betra líf með því að greiða fyrir hana skólagöngu og fulla framfærslu í heimavistarskóla.

Við vorum að styrkja strák í Uganda sem heitir Sunday Opiyo en nú er hann fluttur og við höfum tekið að okkur stelpu sem heitir Kevine Jenneth Akello, hún er fædd árið 2008 og býr líka í Uganda. Hún býr hjá móður sinni sem stundar sjálfsþurftarbúskap, Kevine á þrjá bræður Móðir hennar er mjög fátæk og með HIV, faðir er látinn. Hún hefur ekki efni á að senda börnin í skóla og oft er til lítill matur. Við styrkjum Kevine svo hún geti farið í skóla og þar fær hún eina máltíð, einnig fær hún heilsugæsluþjónustu.

Það sem við þurfum til að styrkja þessi tvö börn er um 8.000 kr á mánuði. Ef öll heimili sem eiga nemendur í skólanum koma með 4-500 krónur þá náum við að safna nægum pening sem dugar til að styrkja þau allt næsta ár. Sparibaukar verða í kennslustofum fram í lok nóvember og vonumst við til að flestir taki þátt og leggi sitt af mörkum (upphæðin er að sjálfsögðu frjáls, má vera lægri eða hærri).

Það er trú okkar að með þessu séum við að sá fræjum til nemenda Giljaskóla um að við þurfum að hugsa um minnstu bræður okkar í fjarlægum löndum. Þau koma okkur við og við getum haft áhrif þó við búum á hinu kalda Íslandi. Margt smátt gerir eitt stórt.