Árshátíð 1. -7. bekk

Nú stendur árshátíð Giljaskóla yfir. Árshátíð eldra stigs lýkur föstudagskvöldið 19. mars. Árshátíðir nemenda í 1.- 7. árgangi verða haldnar á sal skólans þriðjudaginn 23. mars,miðvikudaginn 24. mars og fimmtudaginn 25. mars nk. kl. 17.00 - 19.00.

Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri borga ekkert. Selt er inn við innganginn. Aðgangseyrir að sýningum skiptist á milli bekkjanna sem sýna.

Foreldrasýning

Þriðjudag 23. mars sýna 1. og 2.bekkur.

Miðvikudag 24. mars sýna 3.AKA, 4.GH, 5.KS, 6.GS, 7.BK og sérdeild.

Fimmtudag 25. mars sýna 3.VD, 4.KMÞ, 5.RK, 6.MBG og 7.IDS.

 Sýning nemenda mun taka um það bil eina klukkustund og að henni lokinni verður kaffisala á vegum 10. bekkjar.

 Kaffi og meðlæti kostar 700 krónur fyrir fullorðna og fyrir 8. bekk og eldri, 300 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt. Á meðan á kaffisamsæti stendur á þriðjudag ogfimmtudag verður einnig ball fyrir nemendur í 1. - 7. bekk í umsjón 10. bekkjar. Aðgangseyrir er 100 krónur. Sjoppa verður á staðnum.

 Á þriðjudag að lokinni sýningu verður ball fyrir 1. - 2. bekk.

Á fimmtudag að lokinni sýningu verður ball fyrir 3. - 7. bekk.

 Sjöundu bekkingum í Giljaskóla gefst einnig kostur á að koma á ballið hjá 8. - 10. bekk sem verður föstudaginn 19. mars kl. 21.00 og dvelja til kl. 23.00.

Aðgangseyrir á ballið verður kr. 700.

Áður en ballið hefst verður afhending á Giljaranum og hefst hátíðin kl. 20.00. Aðgangur ókeypis.

Viðvera nemenda verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.

Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund með börnum sínum í skólanum.