Árshátíð 1. og 2. bekkur

Þriðjudag 23.mars: 1. og 2. bekkur sýna kl. 17:00.

Sýning nemenda mun taka um það bil eina klukkustund og að henni lokinni verður kaffisala á vegum 10. bekkjar.

Kaffi og meðlæti kostar 700 krónur fyrir fullorðna og fyrir 8. bekk og eldri, 300 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt. Á meðan á kaffisamsæti stendur verður ball fyrir nemendur í 1. - 7. bekk í umsjón 10. bekkjar. Aðgangseyrir er 100 krónur. Sjoppa verður á staðnum.