Árshátíðir

Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 28. mars, miðvikudaginn 5. apríl og fimmtudaginn 6. apríl kl. 17:00. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu.

Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli 1. – 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða. Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla.;

Þriðjudagur  28.  mars kl.  17:00  sýning  stuttmynda  nemenda  í  8.-10.  bekk,  afrakstur þemadaga.

Miðvikudag 5. apríl kl. 17:00 sýna 1. bekkur, 3.TB, 4.GS, 5.BK og 7.ÁEK

Fimmtudag 6. apríl kl. 17:00 sýna 2. bekkur, 3.AE, 4.LS, 5.AR, 6. bekkur og 7.KMÞ

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund og að þeim loknum verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

Kaffi  og  meðlæti  kostar  1200  krónur  fyrir  fullorðna  og  8.-10.bekk,  500  krónur  fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 8.-10. bekk og afhending á Giljaranum vegna stuttmynda verður föstudagskvöldið 31. mars.

Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis).

Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 20:45 og stendur til miðnættis. Nemendum í 7. bekk Giljaskóla gefst kostur á að koma á ballið og dvelja til kl. 23.00. Aðgangseyrir á ballið er kr. 1500.

Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.

Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum.

Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að  börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á  meðan á sýningum stendur.

Kær kveðja og góða skemmtun, starfsfólk Giljaskóla