Árshátíðir nemenda

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 8. mars, miðvikudaginn 16. mars og fimmtudaginn 17. mars kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn.

Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli 1. – 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða.

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla.;

Þriðjudagur 8. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk, afrakstur þemadaga.

Miðvikudag 16. mars kl. 17:00 sýna 1. bekkur, 2.AE, 3.GS, 4.SLR, 6.ÁEK og 7.AR og sérdeild.

Fimmtudag  17. mars kl. 17:00 sýna 2.TB, 3.LS, 4.VD, 5. bekkur, 6.KMÞ og 7.BK og sérdeild.

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund og að þeim loknum verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

 

Kaffi og meðlæti kostar 1200 krónur fyrir fullorðna og 8. bekk og eldri, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.

 

Árshátíðarball fyrir nemendur í 8.-10. bekk og afhending á Giljaranum vegna stuttmynda verður föstudags­kvöldið 11. mars.

Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis).

Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 20:45 og stendur til miðnættis.

Nemendum í 7. bekk Giljaskóla gefst kostur á að koma á ballið og dvelja til kl. 23.00.  Aðgangseyrir á ballið er kr. 1000.

 

Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.

Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

 

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum.

 

Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.

 

Kær kveðja og góða skemmtun,

starfsfólk Giljaskóla