Árshátíðir nemenda

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 8. apríl, miðvikudaginn 9. apríl og fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:00. 

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu. Það verða posar á staðnum.

 

Aðgangseyrinn skiptist á milli sérdeildar og 1. - 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða. 

 

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir;

 

Þriðjudagur 8. apríl kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8. - 10. bekk; afrakstur stuttmyndadaga.

Miðvikudag 9. apríl kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 3. bekkur, 5. bekkur og 7. bekkur.   

Fimmtudag  10. apríl kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 1. bekkur, 2, bekkur, 4. bekkur og 6. bekkur.  

 

Árgangarnir sýna í heilu lagi og munu foreldrar fá nánari upplýsingar frá umsjónarkennurum varðandi mætingu nemenda í skólann fyrir foreldrasýningar. Myndband frá nemendum sérdeildar verður sýnt 9. og 10. apríl

 

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund. 

Sjoppa verður opin í íþróttasalnum á stuttmyndasýningunni þriðjudaginn 8. apríl en að loknum sýningum 9. og 10. apríl verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í matsal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

 

Kaffi og meðlæti kostar 1500 krónur fyrir fullorðna og nemendur í 8. - 10. bekk, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk og yngri börn fá frítt. Posi á staðnum.

 

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum. Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.

Kær kveðja og góða skemmtun,

starfsfólk Giljaskóla