Bæjarferð 1. bekkinga

Á þriðjudaginn fór helmingurinn af 1. bekk í bæjarferð með leikskólanum Kiðagili. Krakkarnir eru í sameiginlegu verkefni með leikskólunum Kiðagili og Tröllaborgum um bæinn okkar Akureyri. Þessi hópur lagði áherslu á að skoða Torfunesbryggju, litlu bryggjuna við Hof og stóru bryggjuna á Oddeyri (Sigöldu).


Myndir úr ferðinni hér. 

Ath. það eru tvö myndasöfn.