Bolludagurinn er mánudaginn 27. febrúar og munu nemendur í 10.bekk að því tilefni selja nemendum skólans bollur til styrktar útskriftarferðalagi í vor.
Bollurnar sem hægt er að velja um eru:
- Gerbollur með súkkulaði eða karamellukremi, sultu og rjóma
- Vatnsdeigsbollur með súkkulaði eða karamellukremi, sultu og rjóma.
- Berlínarbollur
Verð:
- Gerbollur 400 kr.
- Vatnsdeigsbollur 400 kr.
- Berlínarbollur 250 kr.
Nemendur í 1.-4 bekk og í sérdeild fengu blað í dag mánudag þar sem hægt er að velja bollur. Nemendur í 5.-10. bekk fengu kynningu í bekkjum og geta pantað bollur hjá umsjónarkennurum.
Skila þarf blöðum á miðvikudag 22. febrúar til umsjónarkennara ásamt peningi fyrir bollunum.
Nemendur í 1.-4 bekk fá bollurnar afhentar í heimastofum á bolludaginn. 5. - 10.bekkur sem fær þær afgreiddar í matsalnum.
Vinsamlegast fyllið út pöntunarseðilinn, klippið hann út og sendið með barninu á þriðjudag eða miðvikudag. Ekki verður hægt að panta bollur eftir miðvikudaginn 22. feb.
Þökkum stuðninginn, 10. bekkur