Börn hjálpa börnum

Í apríl tóku nemendur í 5.bekk þátt í söfnuninni "Börn hjálpa börnum" og stóðu þeir sig afbragðs vel. Þeir gengu í hús í hverfinu og viljum við þakka góðar móttökur. Í ár mun söfnunarféð verða notað til að styrkja innviði  skólastarfs ABC í Afríku og Asíu. Samtals söfnuðust 107.268 krónur og til gamans má nefna að 73.268 þúsund voru klink :)