ABC

Líkt og undanfarin ár taka börn í 5. bekk í Giljaskóla þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á vegum ABC hjálparsamtaka. Þau munu ganga í hús í hverfinu með söfnunarbauka frá deginum í dag og fram til föstudagsins 12. mars. Í ár er safnað fyrir skólabyggingu í suðurhluta Indlands. Börnin sem munu ganga í skólann voru götubörn en búa nú á heimili sem rekið er af ABC hjálparstarfi.

Margt smátt gerir eitt stórt – takið vel á móti krökkunum.