ABC – Börn hjálpa börnum

Líkt og undanfarin ár taka börn í 5. bekk í Giljaskóla þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á vegum ABC hjálparsamtaka. Þau munu ganga í hús í hverfinu með söfnunarbauka frá deginum í dag og fram til 15. mars. Að þessu sinni verður safnað fyrir skólaborðum og bekkjum fyrir ABC starfið í Pakistan og byggingu skólahúsnæðis fyrir ABC í Nairobi í Kenya.

Margt smátt gerir eitt stórt – takið vel á móti krökkunum!