ABC – Börn hjálpa börnum

Líkt og undanfarin ár taka börn í 5. bekk í Giljaskóla þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á vegum ABC hjálparsamtaka. Þau munu ganga í hús í hverfinu með söfnunarbauka frá deginum í dag og fram til 8. mars. Að þessu sinni rennur ágóðinn af söfnuninni til Kenya þar sem verið er að byggja nýja heimavist fyrir götubörn í Nairobi. Einnig verður byggður lítill skóli fyrir fátæk Maasai börn en þau búa á sléttunum við fjallið Kilimanjaro og er þeim kennt undir stóru tré.

Margt smátt gerir eitt stórt – takið vel á móti krökkunum!