ABC – Börn hjálpa börnum

Líkt og undanfarin ár taka börn í 5. bekk í Giljaskóla þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á vegum ABC hjálparsamtaka. Þau eru farin að ganga í hús í hverfinu með söfnunarbauka fram til 28. apríl. Að þessu sinni rennur ágóðinn af söfnuninni til ýmissa skólatengdra verkefna á vegum ABC barnahjálpar.

Sjá nánar á http://abc.is

 

Margt smátt gerir eitt stórt – takið vel á móti krökkunum!