ABC hjálparstarf

Þá erum við búin að telja peningana upp úr öllu sparibaukunum. Upp úr þeim komu hvorki meira né minna en 89.529 krónur! Það kostar 76.800 á ári að borga með börnunum tveimur sem við höfum stutt nú í tvö ár og því getum við haldið því áfram. Vincent í Úganda og Udaya í Indlandi verða örugglega glöð að njóta stuðnings ykkar áfram. Þar sem við eigum afgang munum við sjá hvort við styðjujm eitthvað annað hjálparstarf ,t.d. fyrir jólin, eða hvort við eigum bara afganginn til að geta notað seinna ef söfnunin gengur ekki alltaf svona vel! Takk til ykkar allra, þið eruð alveg frábær!

Kveðja Inda og Margrét