ABC hjálparstarf

Frá árinu 2007 höfum við styrkt eina stelpu og einn strák. Strákurinn heitir Vincent, er fæddur árið 2000 og býr í Uganda. Hann býr hjá fjölskyldu sinni í  mikilli fátækt og höfum við greitt fyrir skólagöngu hans og eina máltíð á dag. Stúlkan heitir Udaya, er fædd árið 1995 og býr á heimili Litlu ljósanna á Indlandi. Við höfum greitt fyrir búsetu og nám hennar þar.
Í tengslum við Norræna skólahlaupið, sem fer fram miðvikudaginn 14. september, höfum við hvatt nemendur og starfsmenn til að gefa smá aur í söfnunarbauka sem nú eru í öllum stofum. Við höfum miðað við 200-300 krónur.
Margt smátt gerir eitt stórt og vonumst við til að geta haldið áfram þessum stuðningi.

http://www.giljaskoli.is/is/skolinn/abc-hjalparstarf