Árshátíð

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda í 1. - 10. árgangi verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 15. febrúar, miðvikudaginn 16. febrúar og fimmtudaginn 17. febrúar næst komandi og hefjast kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekkert. Selt er inn við innganginn. Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli bekkjanna sem sýna og er nýttur til vorferðalaga.

Foreldrasýningar verða í íþróttasal Giljaskóla og er gengið inn í anddyri íþróttamiðstöðvar.


Þriðjudagur 15. febrúar kl.
17:00:sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk, afrakstur stuttmyndadaganna.
Miðvikudag 16. febrúar kl. 17:00: 1. MBG, 2. EE, 3.SLR, 4. b., 5. KMÞ, 6. KS og 7. HJ.
Fimmtudag 17. febrúar kl. 17:00: 1. G/L, 2. TB, 3. VD, 4. b, 5. UV, 6. RK og 7. AH.

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund og að þeim loknum verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans.

Kaffi og meðlæti kostar 700 krónur fyrir fullorðna og einnig fyrir 8. bekk og eldri en 300 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Yngri börn fá frítt.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 8.-10. bekk og verðlaunaafhending vegna stuttmynda verður föstudags­kvöldið 18. febrúar.

Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis)

Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 21 og stendur til miðnættis.

Nemendum í 7. bekk Giljaskóla gefst kostur á að koma á ballið hjá 8. - 10. bekk og dvelja til kl. 23.00.  Aðgangseyrir á ballið er 700 kr.

Viðvera nemenda verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.

Nemendur eru beðnir um að mæta ekki seinna en kl. 16:30 í heimastofur sýningardagana.

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund með börnum sínum í skólanum.

Kær kveðja,
starfsfólk Giljaskóla.