Árshátíð

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda í 1. - 10. árgangi verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 14. febrúar, miðvikudaginn 15. febrúar og fimmtudaginn 16. febrúar nk. kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri borga ekkert. Selt er inn við innganginn. Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli bekkjanna sem sýna og er nýttur til vorfagnaða. 

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla hjá 1. - 10. bekk Þriðjudagur 14. febrúar kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk, afrakstur stuttmyndadaganna.

Miðvikudag 15. febrúar  kl. 17:00 sýna 1. bekkur, 2. LS, 3. EE, 4.SLR, 6. KMÞ og 7. RK og sérdeild Fimmtudag 16. febrúar  kl. 17:00 sýna 2. GS, 3. TB, 4. VD, 5. bekkur, 6. UV og 7. AH

Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.

Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund og að þeim loknum verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans.

Kaffi og meðlæti kostar 1000 krónur fyrir fullorðna og fyrir 8. bekk og eldri, 400 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 8.-10. bekk og afhending á Giljarnum vegna stuttmynda verður föstudagskvöldið 17. febrúar.

Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis) Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 20:45 og stendur til miðnættis.

Nemendum í 7. bekk Giljaskóla gefst kostur á að koma á ballið og dvelja til kl. 23.00.  Aðgangseyrir á ballið er kr. 1000.

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund með börnum sínum í skólanum.

Í fyrra varð töluvert ónæði af leikjum og hlaupum barna á auðu svæði aftan við áhorfendur í salnum.  Vinasamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni.