Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda í 1. - 10. árgangi verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 12. mars, miðvikudaginn 13. mars og fimmtudaginn 14. mars nk. kl. 17:00.
Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri borga ekkert. Selt er inn við innganginn. Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli bekkjanna sem sýna og er nýttur til vorfagnaða.
Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla hjá 1. – 10. bekk
Þriðjudagur 12. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk, afrakstur stuttmyndadaganna.
Miðvikudag 13. mars kl. 17:00 sýna 1. SLR, 3. AE, 4.EE, 5. HF, 6.IÓT og 7. AH og sérdeild
Fimmtudag 14. mars kl. 17:00 sýna 1.VD, 2.B, 3.GS, 4.TB, 5. KMÞ, 6.TIB og 7. RK
Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund og að þeim loknum verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans.
Kaffi og meðlæti kostar 1000 krónur fyrir fullorðna og fyrir 8. bekk og eldri, 400 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.
Árshátíðarball fyrir nemendur í 8.-10. bekk og afhending á Giljarnum vegna stuttmynda verður föstudagskvöldið 15. mars.
Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis)
Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 21.00 og stendur til miðnættis.
Nemendum í 7. bekk Giljaskóla gefst kostur á að koma á ballið og dvelja til kl. 23.00. Aðgangseyrir á ballið er kr. 1000.
Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.
Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.
Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund með börnum sínum í skólanum.
Vinasamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.
Kær kveðja og góða skemmtun,
starfsfólk Giljaskóla