Árshátíð - suttmyndasýning 8.-10.b

Þriðjudagur 12. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk, afrakstur stuttmyndadaganna.

Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri borga ekkert. Selt er inn við innganginn. Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli bekkjanna sem sýna og er nýttur til vorfagnaða.

Sýning mun taka um það bil eina klukkustund og að henni lokinni verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans. Kaffi og meðlæti kostar 1000 krónur fyrir fullorðna og fyrir 8. bekk og eldri, 400 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk, yngri börn fá frítt.