Börnin "okkar" í Úganda

Undanfarin tvö ár hefur Giljaskóli styrkt tvö börn hjá ABC hjálparstarfi. Börnin búa í Indlandi og í Úganda. Okkur langar að halda áfram að styrkja þau og um leið og nemendur Giljaskóla hlaupa norrænt skólahlaup miðvikudaginn 9. september ætlum við að safna fé til styrktar þeim.  Söfnunarbaukar eru í öllum stofum og hafa krakkarnir  fengið að sjá myndir af “börnunum okkar” og heyrt um aðstæður þeirra.

Margt smátt gerir eitt stórt!