Flott án fíknar

Baldur Auðunn Vilhjálmsson, Hreiðar Kristinn Hreiðarsson, Patrekur Sólrúnarson og Stefanía Snædís Johnsen, nemendur í 8. bekk Giljaskóla, unnu til fyrstu verðlauna fyrir auglýsingu sína “Flott án fíknar” sem þau gerðu saman síðast liðið vor. Þessi auglýsing verður sýnd á Skjá Einum í tilefni vímuvarnarviku dagana 19.-25. október.

RUV tók einnig vel í að sýna auglýsinguna sem uppfyllingarefni þessa sömu viku.

Við óskum krökkunum enn og aftur til hamingju með framtak sitt og árangur og vonum auðvitað að árangur náist í baráttunni við fíkniefnavandann.