Frábær árangur hjá Baldri

Þann 25.janúar síðastliðinn fór fram World Rookie Tour mót í Livigno á Ítalíu. Mótaröðin er ein sú stærsta fyrir keppendur á snjóbretti 18 ára og yngri í heiminum og þykir þetta tiltekna mót í Livigno vera það sterkasta innan mótaraðarinnar.

Nokkrir íslenskir keppendur tóku þátt en Baldur Vilhelmsson í 10.SM gerði sér lítið fyrir og sigraði elsta flokkinn á mótinu þrátt fyrir að vera á yngsta ári í flokknum. Við í Giljaskóla erum mjög stolt af Baldri og óskum honum hjartanlega til hamingju með þennan fráfæra árangur.

Strákar (2000-2002)
1.sæti – Baldur Vilhelmsson