Frístund

Skráning í Frístund 2011 - 2012 verður í húsnæði Frístundar 11. og 12. ágúst milli kl. 10 og 14 báða dagana. Allir foreldrar barna í 1.-4. bekk sem skráðu börn sín í vor og ætla að nýta þjónustu Frístundar fyrir börn sín næsta skólaár - staðfesti skráninguna. Staðfesta þarf dvöl í Frístund með undirskrift dvalarsamnings. Þeir sem ekki komast þessa daga hafi samband við skólann til að ákveða tíma. Beinn sími Frístundar er 462 4825