Giljaskóli í 3. sæti í BEST

9. BKÓ í Giljaskóla varð í 3. sæti í BEST stærðfræðikeppninni sem lauk í Hafnarfirði mið. 22. apríl.

Allir nemendur tóku þátt í aðalkeppninni en þeir sem fóru suður fyrir hönd bekkjarins til að taka þátt í undanúrslitunum voru Baldur, Dalrós, Eyrún og Tómas. Þau komust áfram í 3 liða úrslit og enduðu að lokum í 3. sæti eftir jafna og spennandi keppni sem Hlíðarskóli sigraði. Fyrir árangurinn fékk bekkurinn 40 þús. krónur sem renna í bekkjarsjóð. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan fína árangur!

Þess má til gamans geta að upphafsstafir krakkanna fjögurra sem fóru í úrslitin mynda orðið BEST því að Dalrós heitir Sólveig Dalrós.

Myndir