Gjöf til Giljaskóla

Kvenfélagið Baldursbrá hefur ákveðið að veita sérdeild Giljaskóla styrk til tækjakaupa og kaupa á kennslugögnum fyrir deildina að upphæð 100.000 krónur.

Mánudaginn 13. desember komu þrjár kvenfélagskonur færandi hendi með gjöfina. Þær skoðuðu sérdeildina og fengu kynningu á starfsemi hennar.

Starfsmenn sérdeildar og stjórnendur Giljaskóla færa kvenfélaginu hjartanlegar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf og óska því velfarnaðar í framtíðinni.

Myndir frá heimsókninni má sjá hérna.