Greinaskrif nemenda

Nemendur í 9. og 10. bekk hafa í vetur verið duglegir við að skrifa greinar af ýmsu tagi sem birst hafa opinberlega. Þrír miðlar hafa öðrum fremur verið að birta greinar krakkanna.  Akureyri-vikublað hefur birt greinar nemenda aðra hvora viku að jafnaði. Heimasíða skólans birtir reglulega greinar sem ýmist fjalla um skólann og skólalífið eða önnur hugðarefni unglinga. Á heimasíðu Grenndargralsins, undir liðnum Héraðsfréttir, má finna fjöldann allan af greinum nemenda sem fjalla um málefni nærsamfélagsins (http://grenndargral.is/?page_id=619) .