Heilnótan 2018

Heilnótan er samkeppni í tónsmíðum  fyrir 4.-10. bekk  í grunnskólum á Akureyri.   Ungt fólk er hvatt til að senda inn tónsmíðar óháð stíl á rafrænu formi, nótnaskrift eða með  hljóðritun. Lengd verks má vera 2-7 mínútur

Skilafrestur er 30.  mars  2018 á netfangið tonlistarfelagakureyrar@gmail.com

Dómnefnd verður skipuð  fagfólki sem velur úr innsendum tónsmíðum.

Þau verk sem verða valin verða flutt í byrjun  maí af höfundi  eða því tónlistarfólki sem höfundur velur í samstarfi við stjórn tónlistarfélagsins.