Heimsókn frá slökkviliðinu

25. nóvember fékk 3. bekkur heimsókn frá slökkviliðinu í tengslum við eldvarnarvikuna. Börnin fengu fræðslu um eldvarnir, svöruðu getraun og fengu ýmislegt að gjöf, s.s. vasaljós og bókamerki. Einnig fengu börnin að sjá slökkviliðsmann í „fullum skrúða“ og  skoða bílana. 3. bekkur þakkar Slökkviliðinu á Akureyri innilega fyrir komuna.

Myndir hér.