Innritun í Naustaskóla

Að beiðni Ágústs Jakobssonar, skólastjóra Naustaskóla, sendum við neðangreint skeyti á foreldrahópinn. Pósturinn er sérstaklega ætlaður þeim sem búsettir eru í Naustahverfi og öðrum sem hugleiða að skrá börn sín í Naustaskóla.

Kæru foreldrar

Vakin er athygli á að búið er að opna heimasíðuna www.naustaskoli.is. Þar er að finna nokkuð af upplýsingum um skólann, húsnæðið og þann undirbúning sem fram hefur farið, en í framhaldinu munu svo upplýsingar um stefnu og starfshætti skólans birtast á síðunni. Þar sem formleg skráning í skóla á Akureyri fer ekki fram fyrr en eftir áramót, en engu að síður er orðið knýjandi að vita hve margir hugsa sér að skrá börn sín í skólann, bið ég ykkur um að kíkja á heimasíðuna og smella þar á hnapp sem merktur er "Forskráning í Naustaskóla". Einnig er hægt að fara beint á slóðina

http://www.surveymonkey.com/s.aspx?sm=UZkyGghRfoCLkqF4gZUBug_3d_3d

til að opna skráningarsíðuna. Nánari upplýsingar er að finna á skráningarsíðunni og á heimasíðu skólans. Einnig er velkomið að hafa samband við undirritaðan ef spurningar vakna.

Bestu kveðjur,

Ágúst Jakobsson

skólastjóri Naustaskóla

agust@akureyri.is

s: 460-1454 / 847-8812