Íslensku menntaverðlaunin 2024

Bergmann Guðmundsson, verkefnisstjóri við Giljaskóla og Brekkuskóla á Akureyri, og Hans Rúnar Snorrason, kennari við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, hlutu hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2024 fyrir margháttað framlag, leiðsögn og stuðning við kennara og nemendur um allt land við að nýta upplýsingatækni í skólastarfi með árangursríkum hætti.

Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason hafa á undanförnum árum haft afar jákvæð áhrif á skólastarf með stuðningi við kennara og nemendur um land allt og með því að vera fyrirmyndir um notkun á upplýsingatækni í skólastarfi. Þeir hafa verið boðnir og búnir til að aðstoða kennara sem leita til þeirra með fyrirspurnir og vandamál og verið einstaklega ötulir við að deila við hugmyndum um rafrænar lausnir,“ segir á vef Samtaka áhugafólks um skólaþróun.

Við hér í Giljaskóla höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa Bergmann hér sem verkefnastjóra síðustu ár er varðar tæknimál. Með tilkomu Bergmanns í skólasamfélag Giljaskóla hefur starf nemenda og kennara þróast og dafnað í gegnum gott starf hans. Við erum afar stolt af störfum þeirra félaga og hvernig hvati þeirra berst hingað inn í skólann.