Jólin nálgast

Samkvæmt venju verður eitthvað um að hefðbundin kennsla sé brotin upp í desember í tengslum við hátíð ljóss og friðar. Reynt er að skapa notalegt andrúmsloft innan veggja skólans og búa þannig um hnútana að allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Við byrjuðum í morgun á fyrsta jólasöngnum þar sem komið er saman á göngunum og sungið við undirleik Ástu.  Síðan verður sungið dagana 2., 6., 8., 10., 13., 14. og 16. desember.  Myndir hér.
Á morgun verður 1. desember haldinn hátíðlegur með samkomu á sal þar sem við munum heyra fróðleiksmola varðandi atburði fullveldisdagsins og syngja nokkur lög.  Við ætlum einnig að mæta í sparifötunum þennan dag.

Annar desember
verður skreytingadagur þar sem nemendur fá að dunda við eitthvert jólaföndur og skreyta stofuna sína fyrir aðventuna.

Í Giljaskóla hefur skapast hefð fyrir ýmsum verkefnum sem tengjast aðventunni.  Sem dæmi um slík verkefni eru boðun Maríu og fæðing Jesú, englar, kvæði Jóhannesar úr Kötlum um íslensku jólasveinana, jólaköttinn, Grýlu, Leppalúða, Þegar Trölli stal jólunum, heimsóknir í kirkju svo eitthvað sé nefnt.

Sjötti bekkur sýnir helgileik að venju.  Áætlaðar sýningar eru 14. og 15.desember. Sýnt verður fyrir 1. – 7. bekk.

Þann 17. desember er áætlaður vinabekkjadagur.  Þá er ætlunin að vinabekkir geri eitthvað skemmtilegt saman, spili og fái sér kakótár.

Engir formlegir prófadagar verða en eitthvað er um að kennarar þurfi að setja á próf vegna námsmats.

Á bókasafninu er boðið uppá sannkallaða aðventustund.  Ingunn les úr nýjum jólabókum og býður uppá piparkökur.

Litlu jólin
eru á dagskrá 20. des.  Í ár ætlum við að koma saman í íþróttasalnum og ganga þar í kringum jólatréð.  Að þessu sinni er áætlað að tvískipta hópnum.  Tímasetningar eru ákveðnar 9.00 – 10.30 og svo kl. 10.00 – 11.30.

Í ár hafa stjórnendur tekið þá ákvörðun að ætlast ekki til þess að nemendur mæti með litlar jólagjafir.  Hægt er gera Litlu jólin hátíðleg með ljósum, söng, kortum og smákökum að heiman.  Lesa góða jólasögu og eiga notalega stund áður en haldið er í jólafríið.  Með von um að aðventan verði tími ljóss og friðar bæði hér í skólanum og hjá okkur öllum.  Gleðilega aðventu.