Kórastarf fyrir 1.-10.bekk í Giljaskóla (kostar ekkert)

 

Nýjung verður í vetur í tónlistarlífi Giljaskóla. Við hefjum haustið með stofnun nýs Barnakórs fyrir 1.-4.bekk. Kóræfingar verða á mánudögum kl.13:15-13:45, 30 mínútur með miklum söng.

Þau börn sem eru í frístund geta einnig komið og verða þá sótt þangað.

Æfingar verða í tónmenntastofu og kórstjóri Ásta Magnúsdóttir tónmenntakennari.

Fyrsta kóræfing verður mánudaginn 2.september Skráning og upplýsingar hjá astamagn@akmennt.is

 

Skólakór verður fyrir nemendur 5.bekkjar og uppúr. Kóræfingar verða á þriðjudögum frá kl.14-15.

Fyrsta kóræfing verður þriðjudaginn 3.september Skráning og upplýsingar hjá astamagn@akmennt.is