Kynningarfundur fyrir verðandi 1.bekkinga 22.maí kl.10

Kynningarfundur fyrir verðandi 1.bekkinga verður í Giljaskóla miðvikudaginn 22. maí næstkomandi kl. 10.00 á sal skólans. Á fundinum fara nemendur í kynnisferð um skólann í fylgd 5. bekkinga sem eru verðandi vinabekkir þeirra næstu árin. Á meðan munu stjórnendur skólans funda með foreldrum og upplýsa þá um hvernig skólastarfi verði háttað næsta vetur. Á fundinn mæta einnig verðandi umsjónarkennarar árgangsins, hjúkrunarfræðingur skólans og umsjónarmaður Frístundar sem segir frá lengdri viðveru. Áætlað er að félagar úr stjórn foreldrafélagsins verði mættir til að kynna félagið og færa nemendum gjöf.

Þarna gefst gott tækifæri til að kynnast skólanum og spyrja að því sem foreldrum liggur á hjarta varðandi skipulag og starfshætti.  Allir foreldrar/forráðamenn fá í hendur möppu sem inniheldur ýmsar gagnlegar upplýsingar um skólann.

Vinsamlegast hafið samband við ritara skólans, ef þið sjáið ykkur ekki fært að mæta. Ella, ellae@akmennt.is eða í síma 462-4820