Leitin að grenndargralinu 2010

Þriðja vika í Leitinni er hafin. Tæplega 50 krakkar úr Giljaskóla, Glerárskóla og Síðuskóla hafa við upphaf þriðju viku skilað inn úrlasunum við fyrstu þraut og fengið fyrsta bókstafinn. Nokkrir úr þessum hóp hafa skilað inn réttum úrlausnum við þraut nr. 2.

Enn er hægt að hefja leik og mun fyrsta þraut standa verðandi þátttakendum til boða út þessa viku. Ef einhver vill hefja leik eftir þann tíma er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að hafa samband við umsjónarmann Leitarinnar.

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Leitarinnar. Slóðin er www.grenndargral.is.