Leitin að grenndargralinu hefst mánudaginn 31. ágúst.

Um er að ræða leik og/eða keppni þar sem nemendur fá eina þraut til lausnar í viku hverri, þraut sem á einhvern hátt tengist sögu Akureyrar og nágrennis. Við lausn hverrar þrautar fá nemendur einn bókstaf og er markmiðið að safna ákveðnum fjölda bókstafa sem að lokum mynda lykilorð. Þegar krakkarnir hafa raðað saman bókstöfunum og myndað sjálft lykilorðið hafa þeir öðlast rétt til að hefja leit að grenndargralinu. 

Gralið er staðsett á Akureyri og fá krakkarnir vísbendingar sér til aðstoðar við leitina. Sá eða þeir sem fyrstir finna gralið teljast sigurvegarar í leitinni að grenndargralinu árið 2009. Fá þeir grenndargralið til varðveislu í eitt ár og verðlaunapeninga til eignar. Nemendur á unglingastigi í Síðuskóla taka að þessu sinni þátt í leitinni og því er jafnframt um keppni á milli skóla að ræða.

Leitin að grenndargralinu er tilraunaverkefni í samfélagsfræðikennslu á unglingastigi og er um samstarfsverkefni að ræða milli Síðuskóla og Giljaskóla. Tilraunin miðast að því að auka áhuga og vitund nemenda á nánasta umhverfi í gegnum skemmtilegar og spennandi vettvangsferðir og rannsóknarleiðangra. Öll vinna nemenda fer fram utan skólatíma og því um frjálsa þátttöku að ræða.

Fyrsta þraut kemur upp mánudaginn 31. ágúst kl. 12:00. Þrautirnar verða settar upp vikulega á sama stað og síðastliðið haust þ.e. við inngang að vestan.

Umsjón með leitinni hafa þau Brynjar Karl Óttarsson kennari í Giljaskóla og Sigrún Sigurðardóttir kennari í Síðuskóla.