Leitinni að grenndargralinu 2009 lokið

Þriðjudaginn 1. desember lauk leitinni að grenndargralinu 2009 í Giljaskóla með formlegum hætti. Leitin sem hófst mánudaginn 31. ágúst sl. stóð yfir í rúmar 10 vikur. Alls hófu 36 nemendur leik, 24 úr Giljaskóla og 12 úr Síðuskóla. Sextán stúlkur kláruðu allar þrautirnar 10 og eru tólf af þeim nemendur í Giljaskóla. Þær fengu afhendar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í keppninni á sal skólans við hátíðlega athöfn í tilefni fullveldisdagsins. Keppnin var löng og ströng eins og gefur að skilja. Meðal þess sem keppendur þurftu að kynna sér á lokasprettinum var íbúafjöldi á Akureyri árið 1789, hörmulegt slys í Eyjafirði 1954 og tengsl Jóns Sigurðssonar, frelsishetju Íslendinga, við fyrstu prentsmiðju Akureyringa. Við heimildaöflun þurftu keppendur m.a. að finna styttu Einars Jónssonar, Útlagar, skoða eintak af hinu merkilega tímariti Norðra og skoða húsið sem hýsti Amtsbókasafnið á Akureyri fyrstu 18 árin. Hér eru þó aðeins nefnd nokkur dæmi um þau viðfangsefni sem krakkarnir stóðu frammi fyrir. Hörð barátta var á milli keppenda undir lok keppninnar þegar orðið var ljóst að gralið væri innan seilingar. Óhætt er að segja að keppendur hafi lagt allt í sölurnar til að verða fyrstir að gralinu. Þegar uppi var staðið höfðu tvær stúlkur úr 9. bekk í Síðuskóla hreppt hnossið. Það voru þær Guðrún Baldvinsdóttir og Lovísa Rut Stefánsdóttir. Þær stöllur eru því sigurvegarar í Leitinni að grenndargralinu árið 2009. Þær fengu grenndargralið afhent með viðhöfn í Síðuskóla miðvikudaginn 2. desember og verður það geymt þar næsta árið. Þá fengu þær verðlaunapeninga til eignar. Starfsmenn og nemendur Giljaskóla óska þeim Guðrúnu og Lovísu til hamingju með sigurinn sem og hinum keppendunum fjórtán sem stóðu sig með stakri prýði allt til enda keppninnar.