Lionsklúbburinn Öspin færir sérdeild gjöf

Í gær, 1. nóvember fékk sérdeildin góða gesti í heimsókn. Það voru konur úr Lionsklúbbnum Öspinni á Akureyri. Ragnheiður Antonsdóttir formaður Aspar færði sérdeildinni 100.000 krónur að gjöf frá klúbbnum til kaupa á búnaði fyrir sérdeildina.

Við kynntum fyrir þeim starfsemi deildarinnar og sýndum þeim ýmis gögn og búnað sem notaður er við kennslu í sérdeildinni.

 Við í sérdeildinni þökkum kærlega fyrir okkur og kemur styrkurinn  að sjálfsögðu að mjög góðum notum.

Fleiri myndir