Litlu jólin

Litlu - jólin eru á dagskrá 18. des. Nemendur mæti í stofur kl.8.30 og eiga fyrst notalega stund með kennurum sínum, síðan er farið í íþróttasalinn og gengið þar í kringum jólatréð. Upp úr kl. 10.15 ættu nemendur að ganga út í jólafrí. Nemendur mæta svo aftur í skólann á venjulegum tíma eftir jólafrí þriðjudaginn 5. janúar. Sú ákvörðun hefur verið tekin að vera ekki með jólakort milli nemenda en við höldum í þann sið að skiptast á litlum jólagjöfum sem kosta um 500 kr.