Norræna skólahlaupið

Norræna skólahlaupið fer fram miðvikudaginn 8. september. Tilgangurinn með því er tvíþættur. Annarsvegar að taka þátt í samnorrænu hlaupi og hins vegar að safna fé til styrktar ABC hjálparstarfi. Frá árinu 2007 höfum við í Giljaskóla styrkt tvö börn. Það er strákur að nafni Vincent, fæddur árið 2000 og býr í Uganda. Hann býr hjá fjölskyldu sinni í mikilli fátækt og höfum við greitt fyrir skólagöngu hans og eina máltíð á dag. Stúlkan heitir Udaya, er fædd árið 1995 og býr á Heimili litlu ljósanna á Indlandi. Við höfum greitt fyrir búsetu og nám hennar þar.

Fyrir hlaupið fá allir nemendur skólans stutta kynningu á hjálparstarfinu sem við erum að taka þátt í, sjá myndir af krökkunum og söfnunarbaukar eru settir í allar stofur. Margt smátt gerir eitt stórt og vonumst við til að geta haldið áfram þessum stuðningi.