Páskatónleikar fös. 3. apríl

Páskatónleikar voru haldnir fyrir alla bekki föstudaginn 3. apríl, á síðasta skóladegi fyrir páskafrí. Þar léku nokkrir nemendur Giljaskóla sem eru í tónlistarnámi og stóðu sig vel.

Við þökkum þeim kærlega fyrir og ennfremur Ástu, tónmenntakennara, og þeim kennurum Tónlistarskólans sem komu með og kynntu, léku undir og aðstoðuðu.

Nokkrar myndir frá tónleikunum eru komnar inn á heimasíðuna. Smellið á Myndir og síðan á fremsta myndaalbúmið.

Gleðilega páska!