Skólahald fellur niður í dag - föstudaginn 7. janúar

Lögreglan á Akureyri segir ófærð mjög mikla í bænum. Lögreglumaður sem talað var við í morgun sagði að reynt væri að halda stærstu götum færum en erfiðlega hefði gengið að koma mönnum til vinnu hjá þeim.

Ljóst er að verulegur hluti starfsmanna og nemenda mun ekki koma í skólann, myndi ekki komast þótt þeir reyndu, og því hefur verið ákveðið að fella reglulegt skólahald niður.