Skólaval – innritun nemenda í 1. bekk grunnskóla

Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrar haustið 2014.

Á heimasíðu skóladeildar, undir hnappnum Skólaval - grunnskólar, má finna upplýsingar um grunnskólana á Akureyri, sértæka þjónustu, viðmiðunarreglur um inntöku, rafræn umsóknareyðublöð og fleira. Hver skóli er með kynningarfund, opið hús, fyrir foreldra barna sem hefja nám í grunnskóla haustið 2014 og eru foreldrar hvattir til að notfæra sér það tækifæri.

Kynning/opið hús, verður í grunnskólum Akureyrar í febrúar frá kl. 9:00-11.00:

Glerárskóli og Lundarskóli           11. febrúar
Giljaskóli og Naustaskóli              12. febrúar
Oddeyrarskóli og Síðuskóli          13. febrúar
Brekkuskóli                                 14. febrúar