Söfnun fyrir ABC börnin okkar

Undanfarin ár höfum við safnað fé til styrkrar ABC hjálparstarfi og það hefur verið í tengslum við skólahlaupið sem fer fram í  september ár hvert. Nú í ár var ákveðið að skilja að söfnun og hlaupið.

Frá árinu 2007 höfum við í Giljaskóla styrkt tvö börn til náms. Börnin sem við styrkjum eru Vincent, fæddur árið 2000 og býr í Uganda og Mandapoti, fædd árið 2005 og býr á Heimili litlu ljósanna á Indlandi.

Nemendur skólans munu fá stutta kynningu á hjálparstarfinu, sjá myndir af krökkunum og síðan verða söfnunarbaukar settir í allar stofur. Framfærsla þessara tveggja barna er 90.000 krónur á ári. Ekki er skylda að koma með pening, en ef allir nemendur og starfsfólk skólans leggja fram um 200 krónur náum við takmarkinu. Margt smátt gerir eitt stórt og vonumst við til að geta haldið áfram þessum stuðningi.