Söfnun fyrir ABC hjálparstarf og norræna skólahlaupið 2011

Hlaupið var þann 14. september. Veðrið lék við okkur og hlupu krakkarnir einn til fjóra “skólahringi”, en einn hringur er um 2,5 km. Söfnunin sem er samhliða hlaupinu gekk vonum framar og söfnuðust 90.498 krónur. Styrkur í eitt ár fyrir börnin tvö hefur nú hækkað upp í 90.000 krónur og erum við mjög glöð að hafa náð þessari upphæð. Nú höfum við styrkt þessi börn í 5 ár og það er gaman að koma inn í bekkina og kynna söfnunina fyrir nemendum því mörgum finnst þeir þekkja til barnanna og hafa áhuga á að styrkja þau.

Þakkir til allra nemenda, foreldra og starfsmanna fyrir þeirra framlag.

Hér má sjá myndir af Heimili litlu ljósanna í Indlandi þar sem Udaya býr

http://abcchildren.over-blog.com/